Um skólann

FOCAL býður upp á námskeið í aðferðafræði gæða-, skjala-, verkefna- og mannauðsstjórnun í Gæðastjórnunarskóla FOCAL. Námskeiðin, sem eru stutt og hnitmiðuð, auka skilvirkni í stjórnun og byggja á þverfaglegri aðferðafræði.

FOCAL býður einnig upp á námskeið í FOCAL hugbúnaðarkerfum sem eru fyrir Lotus Notes, SharePoint og Vefinn, sum hver í opinni dagskrá en önnur námskeið þarf að sérpanta.

Kennarar eru með áralanga reynslu og þekkingu á hverju sviði fyrir sig.

Öll námskeið eða námskeiðshluta er hægt að sérpanta fyrir fyrirtæki.

Afboðun á námskeið þarf að berast með minnst þriggja sólahringa fyrirvara. Berist afboðun síðar þarf að greiða hálft námskeiðsgjald.

Hér að neðan má lesa um þau námskeið sem meðal annars eru í boði hjá Gæðastjórnunarskóla FOCAL.

Fyrirspurn
Ábending
Tilboð
Gerð verklagsreglna

Á námskeiðinu eru kennd formleg og viðurkennd vinnubrögð við gerð verklagsreglna og vinnulýsinga og farið yfir aðferðafræði gæðastjórnunar. Gerðar eru æfingar í ritun verklagsreglna með flæðiritum.           

M.a. er farið yfir:

* Ferilhugsun og hvað er ferill
* Flæðirit og skilgreiningu ferils frá upphafi til enda
* Gerð Cross Functional flæðirita
* Hvernig skilgreina á inntak, úttak og ábyrgð í flæðiriti
* Hvernig skilgreina skjöl og gögn í ferlum
* Ritun verklagsreglu, form og tilvísun í kröfur
Gerð og skipulag handbóka

Námskeiðið er miðað að þörfum allra sem koma að gæðastjórnun eða gerð verklagsreglna og handbóka þ.e. gæðastjóra, gæðatengla, yfirmanna eða annarra starfsmanna sem koma að vinnu við gerð og skipulag handbóka, verklagsreglna, vinnulýsinga, leiðbeininga og eyðublaða.   Þegar verklagsreglur og önnur gögn verða til þá þarf að raða þeim upp með ákveðnum hætti inn í handbækur til að notendur geti fundið skjöl og að auðvelt sé að reka og viðhalda bókinni.  Enn fremur er mikilvægt að útgáfustýra handbókum og tryggja að aðgengi starfsmanna sé sem best að skjölum í bókinni.  Þetta námskeið nýtist því öllum öllum sem koma að gerð handbóka í hvaða formi sem er, þ.e. á pappír, word eða excel skjölum eða í rafrænum kerfum.  Við gerð handbóka þarf að  tryggja samræmd og stöðluð vinnubrögð innan  fyrirtækisins. Á námskeiðinu eru kennd formleg og viðurkennd vinnubrögð, farið yfir aðferðafræði gæðastjórnunar ásamt hagnýtum atriðum við gerð, skipulagningu og dreifingu handbóka.

Meðal annars er farið yfir:

*Hvað er handbók?
*Hvert er markmið handbóka og hvernig nýtast þær?
*Hvað fer í handbækur?
*Skilgreiningar og auðkenning skjala
*Skipulag handbóka í mismunandi formi
*Efnisyfirlit handbóka
*Notendahandbækur
*Rekstur og viðhald handbóka
*Útgáfustýring handbóka
*Dreifing handbóka
*Innri markaðsmál
*Verklegar æfingar í skipulagningu  handbóka
VISIO - Myndræn framsetning gæðaskjala

Í teikniforritinu Visio er auðvelt að búa til flæðirit – verklagsreglur, vinnulýsingar og aðrar skýringarmyndir sem eiga heima í gæðakerfi fyrirtækja. Teikningarnar eru vistaðar inn í gæðaskjölin sem myndir og þurfa því notendur gæðaskjalanna ekki að hafa Visio uppsett á vélarnar sínar til að lesa skjölin. Hægt er að nota verkfæri sem eru sérhönnuð fyrir tiltekin fagsvið í þeim viðskiptalegu og tæknilegu skýringarmyndum sem þörf er á í fyrirtækinu.

Á námskeiðinu eru kennd:

*Grunnatriði Visio
*Gerð stensla
*Gerð cross functional flæðirita
*Gerð TQM flæðirita
Innleiðing verklagsreglna

Námskeiðið er miðað að þörfum þeirra sem koma að gæða– og ferlastjórnun þ.e. gæðastjóra, skjalastjóra, starfsmannastjóra og annarra yfirmanna og starfsmanna sem bera ábyrgð á verklagi og þjálfun starfsmanna. Námskeiðið hentar best þeim sem hafa komið að eða fengið þjálfun í gerð verklagsreglna og uppbyggingu handbóka, t.d. með því að sækja námskeiðin Gerð verklagsreglna og Gerð og skipulag handbóka.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

-           Markmiðasetningu fyrir verklagsreglur og vinnulýsingar
-           Undirbúning fyrir innleiðingu
-           Innleiðingarferlið með innri markaðssetning

Námskeiðið fer fram með fyrirlestri, umræðum og verkefnum.          
Úttektir á verklagsreglum

Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakendum aðferðafræði við að taka út verklagsreglur út frá kröfum ISO 9001:2000 um úttektir, en þær aðferðir henta öllum fyrirtækjum hvort sem þau eru að vinna eftir ákveðnum gæðastöðlum eða innri kröfum um verklag.

Farið er m.a. yfir eftirfarandi þætti á námskeiðinu:

-Almennt um úttektir og tilgang þeirra
–Skilgreiningar
–Undirbúning
-Verklagreglu fyrir úttektir og úrbætur
-Mismunandi hlutverk aðila í úttekt
–Framkvæmd úttekta
–Framkvæmd úrbóta
–Lokaskýrslu úttekta
-Stöðugar umbætur og mælingar

Námskeiðið fer fram með fyrirlestri, umræðum og verkefnum.