Í hvaða röð er best að taka námskeiðin?
Best að okkar mati er að taka þau í eftirfarandi röð: Gerð Verklagsreglna, Visio til að teikna ferla, Gerð og Skipulag Handbóka, Innleiðing verklagsreglna og að lokum Úttektir. Námskeiðin gagnast þó mjög vel þó þau séu ekki tekin í þessar röð, sérstaklega á þetta við þau sem fyrst voru upptalin.
Eru þessi námskeið í gæðastjórnun háð því kerfi sem nota skal?
Nei, alls ekki. Námskeiðin eru í aðferðafræði en ekki notkun hugbúnaðar, en síðan bjóðum við námskeið í hugbúnaðarkerfum er styðja við aðferðafræðina eins og í Gæðhandbókarkerfum og Úttektarkerfum.
Hver er munurinn á námskeiðinu í Visio og Gerð Verklagsreglna?
Námskeiðið í Gerð Verklagsreglna kennir hvernig hentugt er að setja upp verklagsreglur og vinnulýsingar aðferðafræðilega séð. Á Visio námskeiðinu er kennt hvernig best er að nýta sér teikniforritið til þess að teikna upp ferla sem síðan eru settir inn í verklagsreglur og vinnulýsingar.
Fæ ég afslátt ef ég tek fleiri en eitt námskeið?
Já, við höfum boðið afslátt til þeirra sem hafa bókað fleiri en eitt námskeið í einu en lang best er að hafa samband við okkur til að fá frekari upplýsingar, annað hvort í síma 5400900 eða með því að senda póst á focal@focal.is
Er boðinn afsláttur ef sama fyrirtækið sendir fleiri en einn á sama námskeiðið?
Já, við höfum boðið afslátt til þeirra sem hafa bókað fleiri en einn starfsmann á sama námskeiðið, en lang best er að hafa samband við okkur til að fá frekari upplýsingar, annað hvort í síma 5400900 eða með því að senda póst á focal@focal.is Þá gerum við sérstök tilboð í hópanámskeið, en öll námskeið og námskeiðshluta er hægt að panta fyrir hópa.




